Í landi faróanna
Bloggarar
17.10.2007 18:05:24 / aronegypt

Seinasta vika.

Þá er maður búinn að dröslast í gegnum alla helstu ferðamannastaðina aftur í þesarri viku, vegna þess að hann Kalli er kominn hingað. En við fórum á laugardaginn liggur við beint á barinn þegar hann lenti. Síðan eldsnemma á sunndudagsmorguninn eða um kl 13 leytið þá fórum við að skoða Egypskasafnið og Khan al-Khalili og versluðum þar aðeins minjagripadrasl. Síðan á mánudaginn þá fórum við í langa ferð að skoða Þrepapýramídan sem er semsagt elsta steinmannvirki í heimi, fórum síðan aðeins sunnar að skoða rauðapýramídan sem er fyrsti pýramídinn byggður með 45° halla og síðan fórum við eins nálægt beygða pýramídanum og mögulegt var.

Frá Pýramídunum fórum við að skoða Memphis sem er víst fyrrum höfuðborg Egyptalands, en það er eiginlega ekkert merkilegt þar eftir og varla hægt að sjá að þar stóð ein flottasta borg heims, nema eitt lítið safn. Síðan um kvöldið var bara chillað í örmum Cairo borgar.

Á Þriðjudaginn lögðum við af stað um kl 12 að skoða pýramídana í Giza og Sfinxinn og það tók einhverja 4 tíma og síðan var bara farið aftur til Cairo. En í dag, miðvikudagur, þá fórum við að skoða Citadel sem er svona virki upp á hæð með nokkrum moskum og höllum þar sem þjóðarleitogar Egyptalands bjuggu á tímabili. En þar skoðuðum við m.a. Mosku Muhammed Ali's og hersafnið, sem var bara ágætlega gaman. En þaðan tókum við leigubíl að Geyer Anderson safninu, en það er safn sem einhver breskur major stofnaði með munum sem hann safnaði á ferðalögum sínum aðalega í Miðausturlöndin. Mæli með því safni.

En samanbygg við húsið hans þar er stór moska sem er kenndi við Ibn Tulun, en hún á víst að vera eitthvað rosamerkileg. En þar príluðum við m.a. upp á svona týpískan turn. Síðan tókum við leigubíl og ætluðum að fara í Blómagarðinn sem er garður á hæð sem gnæfir yfit Cairo sem var eitt sinn stærsti ruslahaugur landsins en er nú flottasti lystigarður landsins. En á leiðinni þá lenti ég nú bókstaflega í slagsmálum við leigubílstjórann sem skutlaði mér ekki nákvæmlega þangað sem mér langaði að vera skutlað, þannig að ég ætlaði að borga bara hálft verð. En hann var ekki sáttur með það og greip m.a. í höndina mína en ég öskraði bara á hann henti honum í burtu og fór að rífast við hann á ensku og arabísku. En síðan fór Kalli að væla um að ég ætti bara að borga honum en ég neitaði og ætlaði bara að ná í lögregluna og láta hana útkljá málið. En þetta endaði bara með því að kalli borgaði hinn helminginn af verðinu. Það er mikilvæt að láta þá ekki svindla á sér, allaveganna ekki auðveldlega. En við vorum að rífast um 50 íslenskar krónur.

Síðan fórum við í garðinn og borðuðum, en þegar við vorum að fara úr garðinum þá var einhver krakkahópur búinn að hópast í kringum leigubílinn og voru að lemja í leigubílinn og slá til okkar en ég sagði þeim bara að drulla sér í burtu á arabísku ekkert stórmál samt. Síðan er núna bara bara svona smá lokapartý framundan í kvöld og á morgun er það síðan Alexandría, nærststærsta borg landsins.

bæ.

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 21:19:18 / aronegypt

Ferð á Sinaí skagann

Þá er ferðinni lokið á Sinaí skagann. Við, 10 manna hópur frá skólanum lögðum af stað frá Cairo á síðastliðinn fimmtudag um kvöldmatarleytið. Stefnan var sett á Sinaí skaga, sem er í norðausturhluta Egyptalands. Við komum svo á hótelið um miðnætti. En á leiðinni á hótelið þurftum við að sýna vegabréfið svona 4 sinnum en við þurftum að stoppa á nokkrum checkpointum.

En síðan vöknuðum við um föstudagsmorguninn og þá sáum við landslagið í kringum okkur í fyrsta skipti og það var svakalega flott, fjallagarður í baksýn og sandar eins langt og augað eygði í norður og vestur, en fyrir framan okkur var nærri sléttur sjórinn og hinum megin við sjóinn sást vel í Saudi-Arabíu. En hótelið var staðsett á sjálfri ströndinni. En fyrsta verkið þennan dag var að busla aðeins í sjónum og sólbrenna sig. En þegar maður var kominn með smá leið á því, ákváðum nokkrir úr hópnum að fara að snorkla, tókum við þá bát í svona 10 mín fjarlægð og stungum okkur í sjóinn þar sem var svona kóralrif, það var svo flott að það er ekki raun hægt að lýsa því á svart á hvítu, síðan var svo mikið líf í rifinu að maður sá fiska af öllum stærðum og gerðum og litum.

Síðan kl. 10 um kvöldið þá lögðum við af stað í ferð að klífa Sinaífjallið. En það er tveggja tíma akstur að fjallarótunum auk þess þurftum við að fara í gegnum nokkur checkpoint og sýna vegabréfin svona 3 sinnum. En við komum svona rétt rúmlega 1 um nóttina. Þá hófst gangan en hún tók svona 3 tíma, og merkilegasta við þessa göngu var að maður þurfti að stoppa í biðröð til að leggja af stað upp á fjallið og síðan líka þurfti maður að stoppa á miðri leið af því að það var svo mikið af fólki. En það var reyndar kostur við það þar sem að það var niðamyrkur og allir voru með vasaljós og þá sá maður ljósalínuna lykkjast upp og niður fjallið, voðalega sérstakt. En síðan þegar maður var loksin búinn að ganga þessa 2280 metra, þá þurfti maður að berjast um gott stæði til þess að sjá sólarupprásina þannig að ég ákvað bara að klifra upp á kappelluna sem var á toppnum og það var líka stórkostlegt útsýni þar, maður gat séð hægt og rólega landslagið birtast á meðan sólin var að rísa upp, það var kúl auk þess held ég að ég hafi verið sá eini af þessum þúsundum sem nennti að strögglast með bjór upp á toppinn.

En eftir klukkutíma á toppnum þá fór maður hypja sig niður. En á niðurleiðinni löbbuðu við aðra leið heldur en upp og það var svakalega flott þar sem við löbbuðum niður gil, sem var hrikalega flott og síðan á enda gilsins sá maður munkaklaustur, Heilagrar Katrínar en það er umlukið virki eins og kastali, þannig að landslagið var mun flottara fyrir vikið.

En síðan verður maður að skrifa smá fróðleiksmola um staðina. En fjallið á sem sagt að vera fjallið sem Móses kleif og átti að hafa tekið á móti boðorðunum 10 og talað beint við Guð, síðan þar sem klaustið er við rætur þess þar átti hann að hafa talað við brennandi runnan, Guð aftur þar á ferð. Síðan eins og margir vita þá hefur Sinaí verið umdeilt landsvæði þar sem Ísrael hertóku skagann á 6. áratugnum en skiluðu honum síðan aftur á 9. áratugnum. En núna er þetta mjög vinsæll ferðamannastaður fyrir rússa og ísraela.

Síðan komum við dauðþreytt eftir allan hamaganginn seinustu 27 tímana eða svo. En lítið var gert á laugardagskvöldi nema bara spila smá billiard og chilla. Síðan á sunnudaginn var chillað á ströndinni til kl. 1 og lagt var af stað til Cairo aftur um 2 leytið.

Þannig að það sem ég afkastaði á þessarri ferð var að snorkla í alvöru í fyrsta skipti, fara til Asíu, sjá Saudi-Arabíu og Ísrael, fara upp á Mt. Sinaí og kynnast mismunandi týpum af fólki.

En þetta var mjög sérstakur hópur sem ég ferðaðist með. En í ferðinni var skoski herbergisfélaginn minn, skrækróma miðaldra breti en það var bara allt fyndið sem hann sagði út af röddinni og orðaforðanum, síðan vorum við með annan miðaldra breta sem minnti mig oft á Mr. Bean. Síðan vorum við með eina sænska stelpu í hópnum en það var gaman af henni þar sem hún átti það til að tala mjög mikið um óviðeigandi hluti. Síðan voru þrjár stelpur frá Kanada og einn annar breti, en þau töluðu eiginlega ekkert. Síðast en ekki síst var einn kani með okkur, en hann er í bandaríska hernum og er búinn að fara til Afganistan, Írak og Saudi-Arabíu og eiginlega allra miðausturlandanna, en það var áhugavert að eiga samræður við hann þar sem ég var að spyrja hann út í reynslu hans í Írak og svo framvegis, síðan var hann að segja mér allt um allar byssurnar sínar heima, en hann á svona persónulega 15 byssur, m.a. AK-47.

En þetta var mjög fín ferð í heildina og fínt að komast aðeins á ströndina og chilla þar.

 

Fjallagarðar við Mt. Sinaí
Útsýnið á toppi Mt. Sinaí.

 

 

Fleiri myndir koma seinna. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 15:04:16 / aronegypt

Nokkrar myndir

Hérna eru þrjár góðar myndir sem ég er að henda síðuna.

 

 

Ég að pósa í Konunga dalnum

 

 Ég að pósa í Valley of the Kings.
 
Ég við Níl 
Ég við Níl.
 
Týpískur sölubás í Khan al-Kalili.
Týpískur sölubás í Khan al-Kalili.
 
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 14:25:09 / aronegypt

Skólinn

Loksins ætla ég nú að skrifa eitthvað um skólann og námið. En eins og allir vita þá er ég að læra arabísku og gengur bara nokkuð vel, er kominn með alla stafina á hreint og get skrifað einfaldar setningar og talað smá. En í dag var ég samt algjörlega í ruglinu þar sem ég sleppti skólanum í gær út af ferðinni sem ég var í. En greinilega þennan dag var kennt eitthvað nýtt og mjög mikilvægt. Þannig að ég reyndi að spyrja kennarann, Akmehd hvað hann væri eiginlega að meina með þessu. En viti menn maður talar varla stakt orð í ensku, þannig að ég gefst upp á honum og sný mér að bretanum en hann talar víst bara með uppa Cambridge orðaforða og var að nota orð sem mér hefur bara dreymt um að heyra. Þannig að ég eyddi næstu tveimur tímunum eftir skóla að reyna að flétta þessu upp í arabísk-enskri orðabók en gafst síðan upp á því. Þannig að ég fer bara spyrja alla sem ég hitti hvað þetta þýddi en engin svör var að fynna. Gaman hvað þetta getur verið erfitt stundum. En allaveganna þá er bara mjög gaman í skóanum og ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi sem ég fer beint með út á götu og æfi mig á innfæddum.

En síðan er alveg ótrúlegt hvað fólk kemur frá mörgum löndum, í fyrri tímanum mínum þá erum við með japana, bosnía, kanadabúa, ameríkana, portúgala, norsara, svía, breta og þjóðverja, síðan í seinni tímanum er ég með flestum þessum auk kínverja, kóreubúa og nígeríubúa. Þannig að þetta er frekar fjölbreytilegt. Síðan erótrúlega mikið af dönum, svíum og kanadabúum í skólanum. Ég veit ekki með kanadabúana en danirnir og svíanir eiga flestir rætur sínar að rekja til landa sem tala arabísku og eru þess vegna að læra málið.

Síðan í gær fór ég með egypska vini mínum sem ég kynntist út á götu honum Megahed og hann sýndi mér fullt af stöðum til að fara á eyjunni Zamalek, sem er svona alþjóðlegur staður í miðri Cairo. Síðan á morgun eða hinn ætlar hann að kenna mér hvernig á að biðja í mosku, þannig að hann ætlar að taka mig með sér í mosku og ég ætla að prufa að leggjast á hnéin og með ennið í jörðina. Það verður stuð. 

En núna er ég farinn að halda áfram að reyna að fynna út hvað þetta er sem ég veit ekki hvað er.

 

 

 Þetta ætla ég að gera á morgun.

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 23:37:01 / aronegypt

Luxorferðin

Núna á ég örugglega eftir að skrifa mikið, en ég fór í langa helgaferð suður til Luxor, eða öðru nafni Þebu. En ég lagði af stað á fimmtudegi frá Cairo og stefnan var sett á Aswan, sem er aðeins sunnar en Luxor. En lestin var svo helvíti hæg að við Ceasar og Johnny ákváðum að hoppa bara út í Luxor. Við vorum sem sagt komnir þar klukkan 9 um morguninn eftir 11 tíma lestarferð.

Þegar við komum út af lestarstöðinni þá biðu svindlaranir strax eftir að reyna að bjóða okkur öll hotel bæjarins eða leigubíla fyrir alltof mikinn pening. En eftir að hafa náð að hlaupa þá af sér fundum við eitt mjög ódýrt hótel. En þá var komið að því að fara að skoða allt sem Luxor og nágrenni hafði upp á að bjóða, sem er ekki lítið. En við byrjuðum á því að skoða Luxorhofið sem var frekar flott, en eiginlega bara lítið miða við næsta hof sem við skoðuðum sem var 3 km norðar sem heitir Karnak, en þangað forum við með hestakerru. En þar var til dæmis í einum salnum meira en 115 súlur sem voru svona 15 háar og hátt í 2 metrar í þvermál, frekar magnað. Síðan um kvöldið þá kíktum við á Luxor safnið sem var í raun bara mini útgáfa af Egypska safninu en samt flott. En þá var maður eiginlega búinn á því eftir að hafa verið vakandi stanslaust í tvo daga og verið að labba í 35°C með sandinn í augunum.

Næsta dag var vaknað eldsnemma um morguninn og stefnan var sett á Konungadalinn, þar sem tugir grafa hina ýmsu faróa er að fynna. En til að komast þangað þurftum við að taka ferju yfir Níl sem kostar svona 10 kr. Tókum þaðan leigubíl 10 km að dalnum, og þá var maður kominn. Þar þurfti maður að labba einhvern spöl og í hátt í 40°C í bókstaflega eyðurmerkurdal, eini liturinn sem maður sá var ljósbrúnn, ekki ein planta, og að sjálfsögðu gleymdi ég að koma með vatn, þannig að ég þurfti að sníkja ilvolgt vatn af strákunum. En við heimsóttum þrjár grafir en þær voru grafir Ramses III, Tutmosis IV og Ramses IX. Þetta var frekar sérstakt þar sem maður labbaði inn einhverja 120 metra og niður kannski svona 50 metra inn í mitt fjall. Síðan skoðaði maður fínslípaða veggina sem var búið að skrapa í eða mála. Síðan við enda hverrar hvelfingar lá steinkista þar sem múmíman á að hafa legið.

Eftir tvo tíma í dalnum þá forum við að skoða hof Hatshepsut sem er svona 5 km frá þessum stað, þetta er svona einn af þessum stöðum sem þú kannski sérð í bíómyndum sem eiga að gerast í Egyptalandi. Þetta er svakalega flott hof sem gnæfir yfir dalnum með stórkostlegt útsýni yfir bakka Nílar sem eru sígrænir með fullt af pálmatrjám. En síðan eftir að hafa skoðað þetta hof forum við aftur í bæinn og fengum okkur að éta. En eftir það tókum við Felucca sem er svona nútíma útgáfa af bátum sem forn-egyptar notuðu, ekki ósvipað. En við silgdum sem sagt á Nílarfljóti og horfðum á sólarlagið. Síðan um 8 leytið þá forum við á lítið safn sem heitir Mummification Museum sem sýnir svona létt hvernig múmíur eru búnar til og eru með fullt af múmíum af dýrum og svoleiðis skemmtilegheit.

Síðan á Sunnudeginum þá leyfðum við okkur að sofa aðeins út en vöknuðum um hádegi og ákváðum enn og aftur að skoða hluti hinum megin við Níl. En við skoðuðum Medinat Habu einnig þekkt sem hof Ramses III, en það var svona í svipuðum dúr og Luxor hofið bara aðeins minna, en hafði virkilega flotta veggi. Síðan eftir það fórum við rétt hjá til Ramesseum sem var svona 1.5 km frá þessu hofi. En það var já allt í lagi og það sem mér þótti flottast við það var risastór stytta sem hafði hrunið á jörðina. Síðan enduðum við daginn á týpískri egypskri máltíð og tei.

En ef ég myndi fara út í öll smáatriði þá myndi þessi ferð enda í þremur bindum. Enda ekki að ástæðulausu að hundruðir bóka hafa verið skrifaðar um þetta sérstaka svæði. En nú (Mánudegi) sit ég í fyrsta farrými í lestinni aftur á leiðinni til Cairo og á meðan horfi ég út um gluggann á enn fleiri ummerki forn-egyptanna, þar sem þau eru á víð og dreif á bökkum Nílar, æðislegt. Síðan á ég eftir að henda inn fleiri myndum frá þessarri ferð, ég tók alveg slatta af myndum þar.

 

 

Hatshepsut hofið

 

 Einn af stöðunum sem ég skoðað, Hatshepsut hofið.
 
Annað hof sem ég skoðaði, Luxor hofið
Annað hof sem ég skoðaði, Luxor hofið. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 13:27:25 / aronegypt

Hae everybody

Thessi vika er buinn ad lifda frekar hratt og madur er adeins buinn ad slaka a turistatoktunum og er ad reyna ad adlagast storborgarlifinu meira.

En nuna er eg ad fara til sudurhluta Egyptlands en eg tek lest fra Ramses lestarstodinni i Cairo og fer med henni til Aswan og thetta er svona 7 tima lestarferd en lina thjaningar manns tha ferdast kallinn i fyrsta farrymi. En Aswan er ekki svo langt fra landamaerum Sudan. En eftir nokkra tima dvol i Aswan fer eg til Luxor en thar er alveg slatta ad sja, m.a. Konungsdalurinn thar sem tugir grafa hafa fundist af faroum.

En eg skrifa um afdrif ferdarinnar eftir helgi.

 

Abu Simbel

Kannski hittir madur thessa a leidinni en their verda ad thvaelast eitthvad vid bakka Nilar.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 16:59:14 / aronegypt

Sabah elkhier

Sæl, í dag var frekar venjulegur dagur hjá mér, bara skóli um morguninn og fram yfir hádegi. En síðan kíkti ég í bæinn og keypti mér útu sem er sem sagt hljóðfæri frá miðausturlöndum, þetta minnir mann frekar á mikið á gítar nema þetta boginn haus og bodyið er hálfkúlulaga. Síðan keypti ég mér einhvern gítargarm sem ég ætla síðan að skilja eftir.

En vegna mikillar eftirspurnar þá ákvað ég að segja loksins nöfnin á herbergisfélögunum. Annar þeirra er jafnaldri minn frá Skotlandi og heitir Johnny. Hinn er fæddur og uppalinn í Brasilíu en er búsettur í San Fransisco, hann heitir Ceasar og er lögfræðingur. Þeir eru báðir alveg nettir náungar

Já síðan kom ég með nokkrar kenningar um af hverju kvennfólkið klæðir sig svona skringilega. Þær sem ekkert sést í eru nefnilega geimverur sem nota þennan klæðaburð til að ganga á meðal manna og sían kvennfólkið sem hylur bara hárið, ég held að þær séu bara skollóttar útaf menguninni hérna. Ég er ekki enn þá búinn að komast af hverju kallarnir eru í kjólum en þygg allar tillögur og mun rannsaka þær. Og já ég er líka búinn að komast af hverju kallanir eru með allir svona marblett á enninu, það er út af því að þeir eru alltaf að klessa á í umferðinni og reka ennið í stýrið. Allt er þetta byggt á vísindalegum grunni.

En ég ætla að þjóta í burtu til að brjóta föstuna og fá mér að borða.

En ég má ekki gleyma arabískukennslu dagsins.

essa'ah kam? - Hvað er klukkan?

essa'ah etnein? klukkan er eitt

Svalt er þaki

 

Geimverva á meðal manna?

 

Geimvera á meðal manna? 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 14:10:37 / aronegypt

Kameldýramarkaðurinn

Í gær forum við herbergisfélaganir í hluta bæjarins sem heitir Coptic Cairo en þar en sem sagt rétttrúnaðarsamfélag Cairobúa. En við skoðuðum fullt af krikjum þar, en í einni kirkjunni leyndist fjársjóður en undir henni er hellir sem er sagt að Jesús, María og Jósef eiga að hafa flúið til þegar þau flúðu frá Ísrael þegar átti að drepa öll ungabörn þar, en því miður er þessi hellir bara opinn einn dag á ári þannig að ég gat bara rétt svo kíkt inn í hann, gaman af því. Síðan fyrir algjörri tilviljun þá fundum við eina staðinn sem selur áfengi út úr búðinni, þar sem þetta er ekki múslimahverfi.

En á leiðinni í þetta hverfi þá lenti ég allt í einu á einhverjum fundi hjá kristilegu hjálparstarfi sem einblíndi á að mennta flóttamenn frá aðalega Súdan. Þannig að ég er kannski að fara að kenna einhverjum ensku eða á tölvur á næstunni.

Síðan tókum við Metróið í átt að Giza til að taka myndir af pýramídunum við sólarlag, þar vippaði ég mér upp á húsþak og náði nokkrum helvíti góðum.

Í dag forum við á cameldýramarkað. En þar safnaðist saman cameldýr víðsvegar úr Afríku og voru seld á uppboði. Þvílík grimmd sem var sýnd gagnvart greyið dýrunum var svakalegt, þau voru lamin sundur og saman með einhverjum svaka prikum. Enda vantaði ekki upp á cameldýralíkin fyrir utan markaðinn. En þetta var nokkuð áhugavert að sjá hvernig þetta virkar hjá þeim.

Síðan á heimleiðinni frá markaðinum fórum við í gegnum einhverja smábæi fyrir utan Cairó. Þar var maður að sjá fátækt eins og maður sér bara í sjónvarpinu þar sem fólk er vælandi á götunni og reynir að sníkja af manni pening. En það var frekar áhrifamikið.

En núna sit ég bara á netkaffihúsi og er að læra meiri arabísku.

En arabískukennsla dagsins:
Sidda – sex
Sabah- sjö
Tamanía – átta
Tissa – níu
Assarha – tíu

 

Pýramídi við sólarlag
 
Pýramídi við sólarlag.
 
Löggan að snæða 
 
Löggan að snæða. 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 17:37:12 / aronegypt

Pýramidarnir og Sfinxinn

Jæja þá er maður loksins búinn að skoða helstu einkennistákn Egyptalands.

Við herbergisfélagarnir fórum að skoða Pýramidana og Sfinxinn, það var var nokkuð góð upplifun. Ekki nóg með það að við skoðuðum þá að utan heldur fórum við líka inn í Keopspýramidan sem er sem sagt sá elsti í Giza og stærst í Egyptalandi, maður þurfti bókstaflega að skríða í gegnum löng göng þangað til maður komst loksins í aðalhvelfinguna í miðjunni þar sem múmían hafði legið. En það eina sem var eftir í hvelfingunni var steinkista sem múmían hefði verið í, ég nýtti að sjálfssögðu tækifærið og vippaði mér ofan í hana og lagðist í hina týpisku múmíustellingu.

Síðan eftir að hafa farið inn í Pýramídann þá röltum við niður eftir til að skoða Sfinxinn en þar lenti ég nú eiginlega í slagsmálum við einn sölumanninn eftir að hann ýtti mér utan í vegg en það endaði með því að hann lagðist niðurá fæturnar mínar og sagði Sorry my friend, I want no problem. En í sambandi við flest alla sölumenn og svindlara þarna að það er alveg ótrúlegt hve lágt þeir geta lagst.

En eftir að hafa skoðað alla pýramídana í Giza, þá fórum við suður á bóginn og fórum að skoða aðra pýramída. En málið var að það var búið að loka svæðinu, þannig að við mútuðum gaurunum sem sjá um svæðið, til að skoða þá og ekki nóg með það þá hleypti hann okku inn í pýramída sem var algjörlega lokaður almenningi enda alveg að hruni kominn enda þurftum við eiginlega að grafa okkur leið inn í miðjuna, manni leið eiginlega bara eins og Howard Carter sem uppgvötaði gröf Tutankhamos árið 1922 í Konungadalnum. En frá þessum stað sáum við elsta pýramída Egyptaland, Zosar í Saqqara, en hann er svona þrepalaga, mjög flott. Til að fullkomna þennan dag þá prufaði ég einnig að fasta (fyrir utan að ég drakk vatn) en það var í tilefni Ramadan.

En myndirnar fara brátt að koma netið ég er búinn að taka alveg slatta.

Enn og aftur er komið að arabísku fræðum dagsins.

sifr - núll
wahid - 1
etnein - 2
taleda - 3
arba'ah -4
khamza - 5

En ég heyri seinna í ykkur.

 

Ég í Giza

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 17:23:36 / aronegypt

Dúfnaétarinn

Dagur 3 & 4

Jæja þá er ég búinn að vera hér í tvo daga í viðbót og búinn að fullnýta þá alveg í tætlur. Ég fór í fyrstu kennslustundina mina á mánudaginn var og hann nú bara ágætlega og maður er kominn með tölurnar og stafrófið svona næstum því á hreint.

Síðan fór ég í íslamska hluta Cairo og það var mjög sérstakt þar með maður labbaði þröngar götur sem voru troðfullar af sölumönnum sem eru ekkert smá ágengir og síðan til að fullkomna upplifunina þá var verið að gera við götuna þannig að maður þurfti að vaða skítinn með gryfjur og vatnslagnir allt um kringum sig, en það var bara gaman.

Síðan er ég bara nýkominn frá Egypska safninu þar sem maður náði að skoða slatta af drasli eins og grimuna hans Tutankshamon og múmíuna hann Ramses II. En síðan var okkur bókstaflega fleygt út á slaginum þegar það lokaði. Þannig að við ákváðum bara að rölta þá aðeins um miðbæinn og forum á einn undarlegasta bar sem ég hef farið á. Þetta var svona staður sem leit út fyrir að vera aðal staðurinn í kringum 1950 en síðan er eins og ekkert viðhald hefur verið á staðnum síðan þá, en hann hafði einhvern veginn skemmtilegt yfirbragð og sál yfir sér.

Síðan eftir tvo tíma þar þá ákvað ég og herbergisfélaginn að fara og fá okkur eitthvað að éta og við ákváðum að fá okkur einhvern hefðbundinn egypskan mat, þannig að forum á einn stað og fengum okkur grillaða dúfu með fyllingu, svona ekki alveg það fyrsta sem manni dettur í hug að borða en hún var bara helvíti góð, bara aðeins og lítið kjöt.

En eina vandamálið hérna er að það er frekar erfitt að fynna “ríkið” hérna eða Drinkie’s eins og keðjan heitir og vegna þess að Ramadam er núna þá er eiginlega ómögulegt að fá sér einhvern bjór hérna☹.

En þá er það arabískukennsla dagsins.

ana imsi… = Ég heiti….
ana min islanda = Ég kem frá Íslandi.

Later.

 

Fyrir utan Egypt Museum

 

Fyrir utan Egypt Museum.

 

 

 

Ég Islamska hluta Cairo

 

Í islamska hluta Cairo.


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 19:01:49 / aronegypt

Dagur 2

Jæja þá er maður búinn að upplifa hluta fyrsta heila daginn sinn hérna í Egyptalandi og búinn að ná að villast, og það er enginn vandi að villast, mér hefur aldrei tekist að villast svona fljótt áður í einhverri stórborg. Það er nefnilega ekkert skipulag á götunum hérna og síðan líta öll húsin nákvæmlega eins, svona ljósbrún og öll að hruni komin. Ég er ekki búinn að sjá neina flotta byggingu hérna. Er reyndar ekki búinn að kanna miðbæinn nógu vel.

Ég er búinn að fara í fyrsta daginn í skólann en það var bara svona nett kynning á þessu og einhver próf. En síðan er ég kominn með íbúð sem ég mun vera í næstu fimm vikurnar, þetta er reyndar frekar flott íbúð svona 5 mínútur frá skólanum í leigubíl. En íbúðin er svona 120 fm með öllu. Ég era að deila þessarri íbúð tveimur gaurum annar er frá San Fransisco og hinn frá Skotlandi. Á reyndar eftir að kynnast þeim eitthvað, þekki þá ekkert.

Núna er í gangi Ramanda, sem merkir að allir eru að fasta, sem sagt mega ekki borða, drekka eða reykja meðan sólin er uppi. Áfengi er síðan bara selt til útlendinga. En síðan ein mesta snilldin hérna era ð það er allt sent heim til manns. Ég get því hringt bara í “ríkið” og þeir senda mér bara allt sem fæst í búðinni, algjör snilld. Egypski bjórinn, Stella, er bara algjör snilld. Fyrsta verkið mitt þegar ég kem heim aftur er að hringja í ríkið og biðja þá um að fara flytja hann inn.

Síðan þarf maður að prútta allt sem maður era að kaupa líka það sem er verðmerkt á matseðlum, í leigubílum og bara alls staðar. Síðan fór ég á markað sem er bara á götunni rétt hjá hótelinu mínu og þar liggur maturinn bara bókstaflega í götunni hliðinna á fátæklingunum á götunni sem eru að selja tissjú. Þetta er sem sagt mesta menningarlega breyting sem ég hef nokkurn tímann lent í.

En á morgun þarf ég að mæta í skólann klukkan 8:30 að fara að læra arabísku.

En þá er komið á arabísku kennslu dagsins.

Shísa – vatnspípa
La – nei
Nam – já

En ég skrifa meira á morgun.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 19:00:11 / aronegypt

Leiðin til Egyptalands

Dagur 1

Jæja, þá er maður lentur hérna í Egyptalandi. Hvað á maður eiginlega að segja, svona smávægilegt menningar sjokk þegar maður kemur hingað, karlmenn í kjólum og flugmenn sem tala arabísku. Það erfiðasta við ferðina hingað til Cairo var að halda niðri sér hlátrinum þegar flugstjórinn byrjaði að tala vegna smá kaldhæðni. En allaveganna þá reyndi maður til dæmis að hlusta á tónlistina í flugvélinni en það var frekar erfitt sökum þess að allar stöðvarnar létu mann halda að maður væri bara staddur í svaka trúarathöfn í einhverri mosku.

En ég er allaveganna kominn á hótelið heill á húfi, en umferðin á leiðinni á hótelið var svakaleg vegna þess að fólkið hérna veit ekki hvað akreinar eru og sikk sakka bara fram og til baka eins og þeim sé borgað fyrir þetta. Svo og þokkabót er legið endalaust á flautunni og fólkið varv ekki einu sinni að kippa sér upp við það. Til að kóróna ferðina á hótelið fékk ég far í einum svalasta bíl sem ég hef nokkurn tíman stigið fæti inn í. Gauranir sem sóttu mig á flugvöllinn, Karam og frændi hans Muhammed mættu á svona 40 ára gamalli Lödu. En það eru víst allir leigubílarnir svona í Egyptalandi, enda taldi ég að minnsta kosti svona 50 bíla út í vegakanti með opið húddið. Gaman af því.

En hótelið er sem sagt alveg ágætt en það skiptir samt ekki miklu máli þar sem ég mun bara gista tvær nætur á því. En síðan er mjög gaman að nefna það að þessir egyptar geta bara einfaldlega ekki ákveðið sig hvaða gjaldeyrir þeir vilja nota, hótelið vildi að ég borgaði í bandarískum dollurum, ég þurfti að borga í evrum upp á flugvellinum og síðan fór ég á veitingastaðin á hótelinu og þá átti ég að borga í egypskum pundum, það er hins vegar ekkert sérlega skemmtilegt þar sem ég er í svona hálftíma að borga öllum.

En núna ligg ég í rúminu og er að fara að sofa og ætla síðan að vakna klukkan sjö um morguninn til þess að vera viss um að ég mæti á réttum tíma í skólann klukkan níu, ég efast samt stórlega um að ég nái því, því að umferðin er víst algjört helvíti hérna. En ég ætla að segja þetta gott í dag og ég á örugglega eftir að henda inn degi tvö hérna inn þar sem verða örugglega mun fleiri ævintýri og vesen. Síðan mun ég einnig henda inn einhverjum myndum þegar ég er búinn að taka einhverjar myndir hérna.

Síðan er það náttúrulega arabískukennsla dagsins

Asalem ú lækum – Vertu blessaður (friður sé með þér)

á móti svarar maður þá

Av lækum es salam

Later folks.

» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Heimkoma
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1574 dögum
RSS tengill